04.02.2026

17 ára Orkubolti fær bílpróf!

Kristjana Rut fæddist á Orkustöð fyrir 17 árum og í dag fagnar hún bæði afmæli og bílprófi.

Kristjana Rut kom í heiminn á planinu okkar hjá Orkunni við Miklubraut þann 4. febrúar 2009 og fagnar því 17 ára afmæli í dag. Atburðurinn vakti mikla athygli á sínum tíma og var fjallað um hann í fréttum Vísis þar sem fram kom að hún hefði komið í heiminn með hraði og því hlotið viðurnefnið „Orkuboltinn“.

Við vildum nýta tækifærið og fagna stóra deginum með Kristjönu. Við færðum henni áletraða úlpu, orkubolta og inneignarkort frá Orkunni, ásamt óskum um farsæla og skemmtilega kílómetra framundan. Það gleður okkur mikið að rifja upp þessa óvenjulegu tengingu sem varð til fyrir 17 árum og fagna þessum tímamótum með henni.