Saman söfnum við fyrir Bleiku slaufuna

Á Bleika daginn, 21. október, runnu 5 krónur af hverjum seldum lítra og hverri seldri kílóvattstund til Bleiku slaufunnar.

Í ár höfum við sett okkur það markmið að safna 3 milljónum króna til styrktar málefninu!

Við streymdum söfnunarupphæðinni í rauntíma á umhverfis-, vef-, og samfélagsmiðlum okkar. Þannig gátu viðskiptavinir fyllt á tankinn og fylgst með því hvernig hver lítri og kWh telur. Það eru enn nokkrir dagar sem telja inn í söfnunina í október áður en við gerum upp árið með Krabbbameinsfélaginu.

Margt smátt gerir eitt stórt!

Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins, tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.

Bleika slaufan er okkur hjartans mál en við höfum verið stoltur​ styrktaraðili átaksins frá árinu 2007. Saman höfum við safnað á annan tug milljóna til baráttunnar gegn krabbameinum hjá konum. ​Við gerum þér einnig kleift að styrkja átakið allan ársins hring með því að tengja Orkulykilinn við Bleiku slaufuna.

En hvað þýðir það að vera bleik allan ársins hring?

Með því að skrá þig í hóp Bleiku slaufunnar styrkir þú átakið um eina krónu af þínum afslætti allan ársins hring en tvær krónur í október. Við jöfnum svo upphæðina sem safnast fyrir hvern seldan lítra og hverja selda kílóvattstund og styrkjum átakið.
Á Bleika deginum ár hvert leggjum við átakinu aukið lið með því að gefa fimm krónur af hverjum seldum lítra og hverri seldri kílóvattstund til Bleiku slaufunnar.

Eins og Bleika slaufan þá elskum við bleikan – í bleikum október og alla hina mánuði ársins.

Skráðu þig í hóp bleiku slaufunnar

Hægt er að kaupa Bleiku slaufuna hjá Krabbameinsfélaginu.

Kynntu þér innblástur Bleiku slaufunnar í ár.

Verum bleik saman allan ársins hring.

Kaupa slaufu

Bleik

augnablik

Bleik

augnablik

Bleik

augnablik

Bleik

augnablik

Bleik

augnablik

Bleik

augnablik

Bleik

augnablik

Bleik

augnablik

Bleik

augnablik

Bleik

augnablik

Bleik

augnablik

Bleik

augnablik