19.09.2025

17 tonn í garðaúrgangsgámana!

Viðskiptavinir Orkunnar söfnuðu 17 tonnum af garðaúrgangi í gámana.

Við buðum viðskiptavinum að losa sig við garðaúrgang í gáma á fimm Orkustöðvum. Alls söfnuðust 17 tonn í gámana frá 14. ágúst til 8. september.

Verkefnið var unnið í samstarfi við HP gáma en markmiðið með verkefninu er að einfalda lífið með því að gera flokkun og förgun garðaúrgangs aðgengilegri. Á höfuðborgarsvæðinu voru gámarnir staðsettir við Austurströnd, Gylfaflöt, Kleppsveg og Reykjavíkurveg. Á Akureyri var gámurinn staðsettur við Mýrarveg. Tekið var á móti grasi, mold, illgresi, arfa og blómaafskurði. 

Takk fyrir að nýta Orkuna í að flokka!