30.06.2026

26 leikir til að spila í sumar

Það þarf ekki mikið til að skapa skemmtilega stemningu í sumar. Hvort sem þú ert í garðinum heima, í sumarbústað eða á tjaldsvæði þá eru hér 26 leikir sem henta öllum aldri 🎲

1. Kubb
Klassískur útileikur sem vekur keppnisskapið hjá öllum.

2. Frisbígolf
Frábær afþreying sem sameinar útiveru og skemmtun.

3. Brennibolti
Gamall uppáhaldsleikur sem klikkar aldrei.

4. Feluleikur
Því fleiri felustaðir, því skemmtilegri verður leikurinn.

5. Eltingarleikur
Einfaldur leikur sem fær alla á hreyfingu.

6. Fótbolti
Stundum þarf ekki meira en bolta og góðan félagsskap.

7. Strandblak
Nauthólsvík er tilvalinn staður fyrir nokkra góða leiki í sólinni.

8. Boccia
Auðvelt að taka með sér og skemmtilegt fyrir alla aldurshópa.

9. Reipitog
Skiptið í lið og sjáið hvort liðið er sterkara.

10. Pokahlaup
Hláturinn er nánast tryggður.

11. Eggjahlaup
Reynt á jafnvægið.

12. Vatnsblöðruslagur
Fullkomin leið til að kæla sig niður á heitum sumardegi.

13. Stórt skip, lítið skip
Skemmtilegur hópleikur þar sem allir þurfa að hlusta vel og bregðast hratt við. Því meiri hraði, því meiri hlátur.

14. Limbó
Hversu lágt kemst þú án þess að detta?

15. Þrautabraut í garðinum
Notaðu það sem er til og búðu til skemmtilega áskorun.

16. Ratleikur
Frábær leið til að kanna nýtt svæði á skemmtilegan hátt.

17. Fjársjóðsleit
Feldu fjársjóð og láttu leitina hefjast.

18. París
Teiknaðu parís með krít og sjáðu hver kemst lengst án þess að stíga á línurnar.

19. Sippa
Einfalt, skemmtilegt og kemur öllum á hreyfingu.

20. Senda flöskuskeyti
Hver veit nema skilaboðin þín berist einhvern daginn á óvæntan stað. Smá sumarævintýri í flösku.

21. Hver er maðurinn?
Skemmtilegur leikur sem hægt er að fara í á ferðinni.

22. Söguleikur
Einn byrjar sögu og næsti bætir við. Útkoman verður yfirleitt óborganleg.

23. Púttkeppni eða minigolf
Hver nær holunni í fæstum höggum?

24. Húllahringakeppni
Hver getur haldið hringnum gangandi lengst?

25. Eina króna
Klassískur leikur sem allir þekkja.

26. Flugdrekaflug
Tilvalin leið til að njóta útiverunnar þegar vindurinn leikur við ykkur.

Hvort sem sólin skín eða rigningin lætur sjá sig er alltaf hægt að finna leik sem kemur öllum í gott skap ☀️🩷