05.10.2026

Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026

Við hlutum viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026, þriðja árið í röð.

Við hlutum viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026, þriðja árið í röð.

Viðskiptablaðið og Keldan taka árlega saman lista yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri. Til að komast á listann þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði sem meðal annars taka mið af afkomu, rekstrarlegum stöðugleika og eiginfjárhlutfalli. Aðeins hluti íslenskra fyrirtækja uppfyllir þau skilyrði og kemst á listann.

Það er sérstaklega ánægjulegt að vera í þessum hópi þriðja árið í röð. Viðurkenningin er góð staðfesting á því að góð vinna skilar árangri og þar eiga okkar frábæru Orkaboltar stóran hlut að máli.

Við höldum áfram að byggja ofan á þann flotta árangur sem náðst hefur.