5 kr. af hverjum lítra og kWh til Bleiku slaufunnar í dag
Fyllum saman á tankinn fyrir Bleiku slaufuna og hjálpumst að við að ná 3 milljóna markmiðinu!
Fyllum saman á tankinn fyrir Bleiku slaufuna og hjálpumst að við að ná 3 milljóna markmiðinu!
Í dag, 21. október er Bleiki dagurinn og í ár fögnum við 20 ára samstarfi við Bleiku slaufuna! Við erum ótrúlega stolt af því að hafa stutt þetta mikilvæga málefni í tvo áratugi.
Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins sem er tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.
Í dag leggjum við átakinu aukið lið og gefum 5 kr. af hverjum seldum lítra og hverri seldri kílóvattstund til Bleiku slaufunnar. Í ár höfum við sett okkur það markmið að safna 3 milljónum króna til styrktar málefninu!
Til að fylgjast með hvernig söfnunin gengur sýnum við styrktarupphæðina í rauntíma á umhverfis- og vefmiðlum. Þannig geta viðskiptavinir fylgt á tankinn og fylgst með því hvernig hver lítri og kWh telur og saman færumst við nær markmiðinu.
Vertu bleik með okkur allt árið
Viltu vera með í bleika liðinu allt árið? Með Orkulyklinum getur þú skráð þig í hóp Bleiku slaufunnar og styrkt málefnið í hvert sinn sem þú dælir.
Þá gefur þú 1 kr. af þínum afslætti fyrir hvern lítra og hverja kílóvattstund allt árið og 2 kr. í október. Við jöfnum svo upphæðina sem safnast fyrir hvern seldan lítra og hverja selda kílóvattstund og styrkjum átakið.
Skráðu þig í hóp Bleiku slaufunnar hér.