Við hlutum viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026
Við erum stolt af því að hafa hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026, fimmta árið í röð!
Við erum stolt af því að hafa hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026, fimmta árið í röð!
Við erum stolt af því að hafa hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026, fimmta árið í röð!
Við trúum því að öflug liðsheild byggist á fjölbreytileika, gagnkvæmri virðingu og jöfnum tækifærum. Hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur Orkubolta sem hver og einn leggur sitt af mörkum til að gera Orkuna að betri vinnustað. Við viljum skapa umhverfi þar sem ólík sjónarmið fá að njóta sín, starfsfólk fái tækifæri til að vaxa í starfi og öllum gefst tækifæri til að hafa áhrif.
Jafnvægisvog FKA er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu sem vinnur að því að jafna hlut kynja í æðstu stjórnunarstöðum íslenskra fyrirtækja. Markmiðið er að árið 2027 verði kynjahlutfall í framkvæmdastjórnum íslenskra fyrirtækja að minnsta kosti 40/60.
Viðurkenningin er okkur mikil hvatning til að halda áfram á sömu braut. Við erum heppin með Orkuboltana okkar og þökkum þeim fyrir að leggja sitt af mörkum til vinnustaðamenningar þar sem allir skipta máli.
Við ætlum að leggja okkar af mörkum til að knýja jákvæðar breytingar áfram, því jafnrétti gerist ekki af sjálfu sér.
Jafnrétti er ákvörðun.