Orkan hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2023
Orkan hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2023 annað árið í röð sem við erum einstaklega stolt af.
Orkan hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2023 annað árið í röð sem við erum einstaklega stolt af.
Orkan hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2023 annað árið í röð sem við erum einstaklega stolt af. Við leggjum mikla áherslu á að fagna öllum ólíku orkuboltunum sem starfa hjá okkur og viljum skapa vinnustað og vinnugleði þar sem rödd allra fær að skína og skoðanir allra eru vel metnar, því við töpum öll á einsleitninni.
Tilgangur Jafnvægisvogar FKA sem er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í átvinnulífinu, er að auka á jafnvægi í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi með það að markmiðið að árið 2027 verði hlutfall á milli kynja a.m.k. 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi.
Við erum stolt af því að vera fjölbreyttur hópur starfsmanna þar sem allir hafa rödd og saman nýtum við orkuna í góðu málin.
Jafnrétti er ákvörðun.