30.05.2025

Sjálfbærniskýrslan fyrir 2024 er komin út!

Í skýrslunni förum við yfir hver við erum í hnotskurn, okkar stefnu og framtíðarsýn í sjálfbærnimálum.

Það er gott að fara yfir liðið ár og vegferð okkar í sjálfbærnimálum, hvar við erum að standa okkur vel og hvað við getum gert betur. Við höfum tekið stór skref í vegferð okkar í orkuskiptunum og stefnum á að fjölga hraðhleðslustöðvum enn frekar á þessu ári.


Sjálfsafgreiðslustöðvarnar okkar voru 72 um allt land árið 2024 og erum við eina olíufélagið sem býður alla fimm orkugjafana: eldsneyti, dísel, vetni, metan og rafmagn. Það eru ótal mörg skemmtileg verkefni sem við framkvæmdum í fyrra. 

Við ætlum ekki að skrifa þau öll upp heldur hvetjum við þig til að lesa skýrsluna hér og kynnast okkur Orkuboltunum aðeins betur.


Megi Orkan vera með þér!