Innskráning fyrir félög að mínum síðum

Til að fá aðgang að mínum síðum fyrir hönd félags þarf viðkomandi að vera með skráða prókúru hjá Fyrirtækjaskrá. Athugaðu að bankaprókúra gildir ekki.

  • Hægt er að kanna stöðu prókúru með því að fara inn á vef fyrirtækjaskrár og leita að félagi.
  • Þar er hægt að sækja staðfest vottorð félagsins, þar sem fram kemur hverjir eru skráðir prókúruhafar félagsins.
Fyrirtækjaskrá

Skrá umboð til að tengja aðgang við rafræn skilríki

1.  Farið er inn á Signet-vefinn með rafrænum skilríkjum.

2. Undir „Veita umboð“ eru eftirfarandi upplýsingar skráðar:

  • Nafn félags
  • Kennitala umboðshafa
  • Gildistími aðgangs
Signet-vefur

Þegar staðfesting birtist er aðgangurinn tilbúinn og hægt að skrá inn á mínar síður hjá Orkunni fyrir hönd félagsins.

Mínar síður Orkan