Svona safnar þú Strikum
Skráðu þig í strikið
Skráðu þig og byrjaðu að safna strikum með því að dæla með Orkulyklinum.
Veldu þína stöð
Þú getur valið þína Orkustöð þar sem þú færð lægsta verðið okkar í hverri dælingu.
Haltu þínu striki
Dældu að minnsta kosti einu sinni í mánuði til að halda þínu striki.
Þegar þú hefur haldið þínu striki í 12 mánuði í röð færð þú fría dælingu.
Fylgstu með strikinu
Á Mínum síðum getur þú nálgast allar upplýsingar varðandi stöðuna þína í strikinu. Sérðu pakka? Þú færð skemmtilega glaðninga á mánuði 3, 6 og 9.
Fáðu lægsta verðið á þinni stöð
Þegar þú skráir þig í "Haltu þínu striki" getur þú valið þína Orkustöð. Þar færðu lægsta verðið okkar í hvert skipti sem þú dælir með Orkulyklinum.
Þú safnar þó alltaf strikum á öllum Orkustöðvum - sama hvar þú ert á landinu.
Spurt og svarað
Haltu þínu striki er leikur hjá Orkunni þar sem viðskiptavinir með Orkulykilinn safna strikum fyrir hvern mánuð sem keypt er eldsneyti eða rafmagn að minnsta kosti einu sinni í mánuði á Orkustöð. Þegar þú hefur safnað 12 strikum í röð, með viðskiptum í gegnum Orkulykilinn, átt þú inni fría dælingu. Í 12. mánuðinum nýtist frí dælingin sem inneign á Orkulyklinum þínum og reiknast hún sem meðaltal allra dælinga þessa 12 mánuða. Ein viðskipti í mánuði duga til að taka þátt í leiknum en með því að hámarka hverja dælingu hækkar meðaltal dælinga og þar af leiðandi inneignin í frídælingunni.
Þátttakandi þarf að skrá sig í leikinn og eiga virkan Orkulykil, á lyklakippunni eða rafrænan í veski í símanum, sem er tengt debet- eða kreditkorti.
Fría dælingin miðast við meðalupphæð allra dælinga eða hleðslna á tímabilinu. Þannig endurspeglar hún þína raunverulegu notkun - hvort sem þú notar eldsneyti, rafmagn eða bæði. Þú getur safna strikum með báðum orkugjöfum en inneign er veitt eftir vöruflokkum og því safnar þú meðaltali af elsdneyti og meðaltali af rafmagni í sitthvoru lagi eftir notkun.
Þú verður að vera Orkulyklahafi hjá Orkunni, þ.e. eiga virkan Orkulykil, á lyklakippunni eða rafrænan í veski í símanum, tengt debet- eða kreditkorti. Þörf er á að skrá þig í gegnum mínar síður Orkunnar (minarsidur.orkan.is) og auðkennir þig með rafrænum skilríkjum. Haltu þínu striki er ætlað einstaklingum en fyrirtækjareikningar og erlendir ferðamenn geta ekki tekið þátt. Aðeins ein skráning er heimil á hverja kennitölu en strikið gildir á alla Orkulykla sem tengjast reikningi þátttakanda. Til að geta skráð þig í strikið verður þú að hafa náð 17 ára aldri, sem er í samræmi við persónuverndarstefnu Orkunnar.
Vörur sem þú getur safnað striki með eru eldsneyti og rafmagn. Aðrar þjónustur t.d. metan, vetni eða rúðuvökvi á dælu teljast ekki til strika og hafa ekki áhrif á inneignina.