Færanlegar hraðhleðslustöðvar í fyrsta sinn á Íslandi
Við höfum tekið í notkun fyrstu færanlegu hraðhleðslustöðvarnar hér á landi.
Við höfum tekið í notkun fyrstu færanlegu hraðhleðslustöðvarnar hér á landi.
Við höfum nú tekið í notkun fyrstu færanlegu hraðhleðslustöðvarnar hér á landi en um er að ræða rafhlöðubanka sem geymir 300 kWh af orku. Með rafhlöðubanka myndast minna álag á raforkukerfið og gerir það að verkum að hægt er að tengja lausnina við minni rafmagnstengingu en hefðbundin hraðhleðslustöð en samt sem áður halda fullu afli. Hægt er að nota færanlegu hraðhleðslustöðvarnar sem neyðarlausn í rafmagnsleysi. Með þessari nýjung verður orkunýting mun betri.
Það er norska sprotafyrirtækið Elywhere sem hannar færanlegu hraðhleðslustöðvarnar en fyrirtækið sérhæfir sig í uppsetningu á snjöllum hraðhleðslustöðvum. Stöðvarnar eru virkar á Orkunni Miklubraut við Kringluna og Suðurfelli og vegna þess að þær eru færanlegar býður það upp á sveigjanleika til að kanna framboð og eftirspurn innan hverfa eða jafnvel bæjarfélaga. Á stöðinni eru fjórir hleðslustaurar með þremur CCS tengjum og eitt tengi með bæði CCS og CHAdeMO tengi.
„Þessar færanlegu hraðhleðslustöðvar eru algjör bylting í hraðhleðsluvæðingu landsins. Við sjáum mikil tækifæri með þessari snjöllu lausn, uppsetning á búnaði er einfaldur og skapar tækifæri til að kanna hleðsluþarfir viðskiptavina eftir svæðum. Orkan tekur þátt í orkuskiptunum og munu færanlegar hleðslustöðvar auðvelda okkur að koma til móts við aukina eftirspurn viðskiptavina og gera orkuskiptin aðgengilegri um allt land,” segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar.
Á myndinni eru frá vinstri: Guðmundur I. Þorsteinsson, forstöðumaður þróunarsviðs, Vífill Ingimarsson, forstöðumaður rekstrarsviðs, Auður Daníelsdóttir, forstjóri, og Brynja Guðjónsdóttir, markaðsstjóri.