Frítt að hlaða á Fitjum, Reykjanesbæ
Hugur okkar er hjá heimafólki sem tekst nú á við mjög krefjandi aðstæður.
Hugur okkar er hjá heimafólki sem tekst nú á við mjög krefjandi aðstæður.
Vegna ástandsins á Reykjanesskaganum hafa íbúar á Reykjanesi verið hvattir til að hlaða á hraðhleðslustöðvum frekar en í heimahúsum samkvæmt tilmælum frá HS Veitum. Við vildum koma til móts við viðskiptavini á svæðinu og lækkuðum verð á rafmagni niður í 25kr./kWh vegna ástandsins. Aðstæður voru endurmetnar og ákveðið var að bjóða fría hleðslu á Fitjum.
Hraðhleðslustöðin á Fitjum býður upp á 500 kW hleðslu með 8 stæði, CCS tengi og eitt CHAdeMO tengi. Hægt er að greiða með öllum helstu kredit- og debetkortum, Apple/Google Pay, Orkulyklinum, Netgíró og e1 appinu.
Hægt er að lesa nánar um tilmæli HS Veita hér - https://www.hsveitur.is/fraedsla/spurt-og-svarad/natturuhamfarir/
Hugur okkar er hjá heimafólki sem tekst nú á við mjög krefjandi aðstæður.