31.08.2023

Fyrstu hraðhleðslur Orkunnar hafa opnað á Birkimel og Vesturlandsvegi

Við erum spennt að segja frá því að við höfum opnað okkar fyrstu hraðhleðslustöðvar á Birkimel og Vesturlandsvegi.

Við erum ótrúlega spennt að segja frá því að við höfum opnað okkar fyrstu hraðhleðslustöðvar á Birkimel og Vesturlandsvegi. Við fengum viðskiptavini til að prófa og gefa okkur endurgjöf sem hefur verið dýrmætt. Við buðum viðskiptavinum að koma og hlaða frítt fyrstu vikurnar sem gerði okkur kleift að vinna hratt og örugglega að því að hefja vegferð okkar inn í orkuskiptin.

Á stöðvunum eru sex hleðslustaurar, fimm með öflugum CCS tengjum og einn með bæði CCS og CHAdeMO tengi. Hleðslustöðvarnar bjóða upp á 400-600kW rafmagn frá orkusalanum Straumlind, sem notar eigin hugbúnað, gervigreind og sjálfvirkni til að tryggja sínum viðskiptavinum hagstæðasta verð á rafmagni á Íslandi.

Á Orkustöðvunum er hægt að greiða með Orkulykli, greiðslukortum og snertilausum greiðslum sem og að nýta E1 appið. Við bjóðum lægsta verðið á rafhleðslu en verðið er 58kr/kWh.

Við erum með 72 Orkustöðvar um allt land og komum til með að fjölga hraðhleðslustöðvum hratt á næstu misserum. Hraðhleðslustöðvar á Akureyri og á Laugavegi eru í uppsetningu eins og er.

„Orkuskipti í samgöngum eru risastórt verkefni og með þessu erum við að taka okkar fyrsta skref í þeirri vegferð. Okkur fannst mikilvægt að koma inn á orkumarkaðinn með krafti og þess vegna urðu hraðhleðslur fyrir valinu á okkar stöðvum.  Markmið Orkunnar er ávallt að einfalda líf viðskiptavina á ferðinni og hlökkum við til að sjá hvernig tekið verður í þessa nýjung hjá okkur,“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar.

„Straumlind óskar Orkunni innilega til hamingju með opnun fyrstu hraðhleðslustöðvarinnar. Straumlind selur rafmagn til heimila og fyrirtækja um allt land og það er ánægjulegt að sjá Orkuna stíga þetta skref enda eru orkuskipti í samgöngum gríðarlega mikilvægt verkefni“ segir Símon Einarsson framkvæmdastjóri Straumlindar.

Á heimasíðu Orkunnar og Facebook er hægt að fylgjast nánar með vegferð Orkunnar í orkuskiptunum í hópnum Orkan Rafmagn.