10.01.2023

Orkustöðin í Suðurfelli römpuð upp og er nú fyrsta aðgengilega bensínstöð landsins

Orkustöðin í Suðurfelli er fyrsta aðgengilega bensínstöð landsins og voru ramparnir formlega teknir í notkun í gær.

Í samstarfi við  Römpum upp Ísland og Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra hefur Orkustöðin í Suðurfelli verið römpuð. Orkustöðin í Suðurfelli er fyrsta aðgengilega bensínstöð landsins og voru ramparnir formlega teknir í notkun í gær þegar Þuríður Harpa, formaður Öryrkjabandalagsins, og Margrét Lilja, formaður Sjálfsbjargar, mættu og fylltu á tankinn. Með því að hækka stéttina í kringum þrjár bensíndælur og færa greiðsluvélarnar neðar hafa Römpum upp Ísland bætt aðgengi fyrir hreyfihamlaða á Orkustöðinni. Bílastæðin hafa einnig verið breikkuð og allt aðgengi að og inn í verslunum verið rampað upp. Auk orkugjafa þá eru Lyfjaval og Sbarro með verslun og þjónustu í Suðurfelli Breiðholti og settir hafa verið sjálfvirkir hurðaopnar, aðgengilegt salerni og borð í réttri hæð.

“Við erum gríðarlega stolt af þessu samstarfi með Römpum upp og Sjálfsbjörg. Þessi vegferð mun einfalda líf hreyfihamlaðra og það er einstaklega jákvætt að taka þátt í henni og geta stutt við vegferðina með þessum hætti. Með þessari breytingu sem við erum að hefja  viljum við tryggja fullt aðgengi viðskiptavina okkar þar sem að auki verður fullt aðgengi fyrir alla innandyra. Vinir okkar í Suðurfelli sem eru Lyfjaval og Sbarro bjóða alla velkomna.  Þarna er stórt þjónustusvæði og okkar markmið er að einfalda líf viðskiptavina“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar.

„Það gleður okkur mjög að sjá að vitundarvakninginn um aðgengi hreyfihamlaðra er farin að teygja sig til annarra þátta samfélagsins. Þegar við hleyptum verkefninu af stað einbeittum við okkur að verslunar og veitingarýmum en þökk sé þrautsegju og frumkvæði annarra erum við farin að sjá rampa á öðruvísi stöðum, eins og til dæmis á þessari bensínstöð“ segir Þorleifur Gunnlaugsson, framkvæmdastjóra og stjórnarformanni Römpum  upp Ísland.

“Það er svo frábært að hafa fyrirtæki eins og Orkuna sem tekur virkan þátt í að gera heiminn betri fyrir okkur öll. Það er magnað að fá að taka þátt í svona flottu verkefni. Við viljum öll geta verið virkir þátttakendur í daglegu lífi þar á meðal að geta sinnt venjulegum hlutum eins og að fylla á tankinn. Þessi stöð er mikilvægur þáttur í að veita hreyfihömluðum einstaklingum sama rétt til sjálfstæðs lífs og öðrum og ég hlakka til dagsins þegar allar bensínstöðvar landsins verða aðgengilegar öllum.“ segir Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir, formaður Sjálfsbjargar landssambands hreyfihamlaðra.

Til stendur að halda samstarfinu áfram og hefur Orkan áhuga á að verslanir við Orkustöðvar á Bústaðavegi, Reykjavíkurvegi, Miklabraut, Hraunbæ og Suðurströnd verði einnig rampaðar upp. Þess má einnig geta að verslanir við Orkuna Stokkseyri og Kleppsvegi hafa nú þegar verið rampaðar upp.

Á hópmynd eru forsvarsaðilar frá Orkunni, Römpum upp Ísland, Sjálfsbjörg, Öryrkjabandalaginu, Hverfisstjórn Breiðholts, Innviðaráðuneytinu og menta og barnamálaráðuneytinu.

Frá vinstri til hægri, röð fyrir aftan
Hringur Hilmarsson – Römpum upp Ísland, Gunnar Þór Gunnarsson – Verkefnastjóri Orkuvaktinni, Brynja Guðjónsdóttir – markaðsstjóri Orkunnar, Ósk Sigurðardóttir – framkvæmdastjóri Sjálfsbjörg, Auður Daníelsdóttir – forstjóri Orkunnar, Jóhannes Guðlaugsson – forsvarsmaður fyrir hverfisstjóra Breiðholts, Vífill Ingimarsson – framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Orkunnar, Arnar Þór Sævarsson – Mennta og barnamála ráðuneytið, Margrét Rut Eddudóttir - baráttukonu fyrir bættu aðgengi hreyfihamlaðra, Vilmundur Gíslason – framkvæmdastjóri SLF, Þorleifur Gunnlaugsson – framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Römpum upp Ísland, Tayo Örn Norðfjörð – Römpum upp Ísland, Ásmundur Einar Daðason – mennta og barnamálaráðherra í forsvari fyrir Sigurð Inga Innviðaráðherra, Guðbjörg Runólfsdóttir – verkefnastjóri markaðsmála og viðburða hjá Sjálfsbjörg, Aðalsteinn Þorsteinsson - innviðaráðuneytið, Guðni Geir Einarsson – innviðaráðuneytið, Ragnar Róbertsson - Jöfnunarsjóður, Þór Sigurþórsson  - Römpum upp Ísland.

Röð fyrir framan
Þuríður Harpa Sigurðardóttir – formaður Öryrkjabandalagsins, Haraldur Þorleifsson og sonur þeirra Margrétar– maður árins og baráttumaður fyrir bættu aðgengi hreyfihamlaðra, Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir – stjórnarformaður Sjálfsbjörg, landssamband hreyfihamlaðra