27.03.2025

Fjölnota hanskinn kynntur til leiks

Plasthanskar fjarlægðir af öllum bensíndælum og fjölnota hanskinn tekur við.

Um 100.000 plasthanskar munu sparast árlega þegar einnota plasthanskar verða fjarlægðir af dælum okkar þann 2. apríl næstkomandi. Í staðinn munum við gefa viðskiptavinum fjölnota dæluhanska.

Lengi vel hefur viðskiptavinum okkar staðið til boða að nýta einnota plasthanska þegar dælt er til að tryggja hreinlæti en vegna umhverfissjónarmiða hefur nú verið ákveðið að fjarlægja þá af dælunum.

„Við hjá Orkunni erum alltaf að leita leiða til að minnka áhrif okkar á umhverfið og teljum við þetta gott skref í þeirri vegferð. Við skiljum þó vel að viðskiptavinir velji að nýta sér hanska þegar dælt er og vegna þess var ákvörðun tekin að koma til móts við það sjónarmið og gefa fjölnota dæluhanska í staðinn. Við hlökkum til að taka skrefið með viðskiptavinum okkar. Ég er sannfærð um að það verði vel tekið í þessa nýjung enda hafa viðskiptavinir okkar sýnt það að þeir eru móttækilegir fyrir nýjungum, segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar.

Hanskinn verður í boði fyrir viðskiptavini á skrifstofu okkar í Fellsmúla 28 og hjá samstarfsaðilum á landsbyggðinni. Hanskinn sem er til í nokkrum stærðum er teygjanlegur og verður fáanlegur fyrir hægri hönd eða vinstri.

Hlökkum til að taka á móti ykkur á skrifstofunni sem er opin frá 8:15 - 16:00 alla virka daga nema á föstudögum til 15:15.