23.10.2024

Í dag renna 5 krónur af hverjum seldum lítra og hverju kW til Bleiku slaufunnar

Fylgstu með styrktarupphæðum viðskiptavina í rauntíma á umhverfis- og fréttamiðlum í dag.

Bleiki dagurinn er í dag og höfum við verið stoltur styrktaraðili í 18 ár!

Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins, tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.
Í dag, 23 október leggjum við átakinu aukin lið með því að gefa 5 krónur af hverjum seldum lítra og kW á hraðhleðslustöðvunum okkar til átaksins.

Annað árið í röð birtum við styrktarupphæðir viðskiptavina í rauntíma á umhverfis- og fréttamiðlum. Það þýðir að viðskiptavinir á ferðinni geta séð þá upphæð sem rennur til Bleiku slaufunnar af hverri dælingu og hverri hleðslu. Púls Media þróaði þessa lausn með okkur og er tilgangurinn að sýna fram á að margt smátt gerir eitt stórt.

Ef þú vilt vera bleik með okkur allan ársins hring, hvetjum við þig til að skrá þig í hóp Bleiku slaufunnar. 
Þá velur þú að gefa 1 krónu af þínum afslætti allan ársins hring og 2 krónur í október til málefnisins. Við gefum síðan jafnt á móti þér fyrir hvern seldan lítra og kW sem safnast fyrir Bleiku slaufuna.

Fyllum saman á tankinn fyrir gott málefni!

Hægt er að skrá sig í hóp Bleiku slaufunnar hér.