Orkan fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum
Við tókum á móti viðurkenningunni “Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum”
Við tókum á móti viðurkenningunni “Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum”
Á föstudaginn sl. tókum við á móti viðurkenningunni “Fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum” en það eru Stjórnvísi, Viðskiptaráð, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland sem veita viðurkenninguna. Markmið verkefnisins er að stuðla að umræðum og aðgerðum sem efla góða stjórnarhætti.
Góðir stjórnarhættir ná yfir alla helstu þættina í fyrirtækjarekstri og tengsl milli hagsmunaaðila, svo sem hluthafa, stjórn, stjórnenda, starfsmanna, viðskiptavina, birgja og samfélagsins í heild. Leiðarljósið er að hámarka langtímaverðmæti á sama tíma og hagsmunir allra hagaðila sé gætt.
Það er okkar markmið að viðhafa góða stjórnarhætti enda höfum við trú á að það sé einn liður í að styrkja innviði og auka traust gagnvart okkar hagsmunaaðilum hvort sem það eru starfsmenn, viðskiptavinir eða eigendur.
Nánari upplýsingar um viðurkenninguna má lesa hér hjá Viðskiptaráði